Rabmle og vitleysa
Fyrst væri kannski best að segja hæ! langt síðan ég hef séð ykkur og heyrt í ykkur. FaceBook hefur tekið við sem aðal samskipta straumur okkar.
Ég hef bara ekki hugmynd um hvað ég á að blaðra um hérna núna. Á ég að tjá mig um Harry Potter Trivia dæmið sem ég hef algjörlega fallið fyrir og eyði meiri tíma í en ég ætti? Á ég að tjá mig um skólann? Hvernig væri bara að segja að ég er sjúklega fegin að vera búin og vera í fríi. Þó svo ég hafi bara ekki rassgat að gera er það samt skemmtilegra en dröslast með bækur og láta sér leiðast í snjó og vindi og vera stöðugt veik og þreytt.
Dansinn er að verða búinn, sem er ömurlegt. Það er búið að vera ótrúlega gaman og ég er búin að læra fullt af geggjað skemmtilegum æfingum sem gefa manni góðar harðsperrur (eða hassberrur?). En ég verð bara að vera dugleg að æfa mig þar til í haust.
Sumarið er hér, eða öllu heldur, græna grasið og grænu laufin eru komin.
Langt síðan ég hef séð garðinn heima hjá mér svona grænan og verið hér til að njóta þess í lengur en hálfan dag. Pabbi sló grasið í dag og ég get svo svarið það, ég fann lyktina af því inn í alveg lokað herbergi. Æði!!!En áður en ég hætti þessari vitleysu þá verð ég að segja að myndin sem er á Stöð2Bíó (Invinsible) er svaka mikið bull, en ofsalega skemmtileg. Mæli með þessu fyrir fólk sem er að drekka eða bara í leit að einhverju bulli.
~Pollý
Skuggalegur eltingaleikur.
Gamalt og gott
Nú ætla ég að birta nokkrar skemmtilegar tilvitnanir og staðreyndir um ferðina.
Silja Booty: “Ég er svo djúp að ég er næstum því grunn!”
Hugga “Afhverju ættirðu þá að vera grÖnn?”
Diljá : “Nei, sjáiði! Strætó! Ég hélt það væru bara til strætóar á Íslandi”
(minnir soldið á Sunnu Ósk í Kaliningrad: Sjáiði, þeir nota Asíubúa sem þræla alveg eins og við!)
Hugga bangsi við Ítalina sem voru að rjúfa svefnfrið hennar: “You people ...are ANTS!”
Hugga bangsi : “No, I can’t dance with you , I’m sick. I’m also a man.”
(Í Christianiu) Hugga bangsi: “Vá, mér finnst þetta frábær staður! Ég væri sko alveg til í að flytja hingað yfir sumar eða svo!”
Sonja Shoppie úr hinum endanum raðarinnar: “Ojbara. Það er bara skítugt og viðbjóðlsegt fólk sem býr hérna...!”
Sonja Shopaholic: “ ómægod! Sjáðu hvað hann er sætur!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!”
Hugga bangsi: “Ég tel líklegast að hann sé hommi, Sonja mín!”
Sonja: “pff! Ekki fyrir mig…”
Ég sagði því miður ekkert annað en texta úr bíómyndum...en það er ekkert fyndið.
Ég varð hins vegar vitni að samfararhnakka Jeppe...sem var hræðilegt.
Muniði á Broen þegar við vorum geggjað cool og dönsuðum, 5 mín seinna vorum við umkringdar Ítölum... (litli ítalinn, Fernando og allir..)
Og blessuðum litlu hótelherbergjunum í Köben? úff
Og ríku krökkunum á ráðhústorginu?
Eitt í lokin
Hugga bangsi: “ Stelpur, viljiði svona til að ydda blýantana ykkar?”
Diljá yet-to-be-nicknamed: “Já takk, er hann hvítur?”
Látið heyra í ykkur!
Polster
Frábært!
Þarna er fólk sem vinnur að því að bæta líf og aðstæður fjölskyldna (ath ekki útlit, því það skiptir svo litlu máli!) og ofan á það þá eru fyrirtæki og skólar að gefa styrki og bókstaflega gefa fólki tækifæri á því að falla ekki í sama farið heldur fara aðra og betri leið í lífinu.
Ég skrifaði held ég á hinu blogginu mínu um mann sem býr á Hellu. Þar sem ég eyddi 2 mánuðum þar og var mikið að vesenast með krakkana í sundinu þá var ég mikið í kring um hann, en hann starfar í sundlauginni. Þessi maður gerir allt fyrir alla og er yndislegasta manneskja í heiminum! Það er ekkert sem er ógerlegt og sama hversu stórt það er þá hjálpar hann eins og það væri jafn auðvelt og að blikka augunum!
Þessi yndislegi maður kom oft og bauðst til að gera hitt og þetta fyrir okkur, bara af því honum datt í hug að það gæti gert hlutina þægilegri/skemmtilegri... Fékk meira að segja að heyra eina sögu af honum þar sem hann kom í vinnuna á frídegi og hafði sundlaugina opna lengur því full rúta af túristum kom og allir hinir voru orðnir þreyttir og vildu halda heimleiðis.
Allavega, það geta engin orð lýst því hversu svakalega góð áhrif þessi maður hafði á mig og góðmennska hans er svo sönn og alls ekki tilgerðarleg. Hann er bara svona. Þannig að ég fór að hugsa, þegar ég verð fullorðin, þá langar mig svolítið til að bara vera góð við fólk og vera eins og hann, sátt með lífið og tilveruna, vera góð við allt og alla og hafa áhrif á fólkið í kringum mig.
Auðvitað þarf að byrja núna á þessu, og vonandi kemur þetta hægt og rólega, en ég vil frekar láta minnast mín í þessum heimi sem góðri manneskju sem fólki líður vel í kringum heldur en kaldri, harðri manneskju sem átti svakalegan feril... Blanda af þessu tvennu væri fín, en ég vel hið fyrra ef það er ekki hægt.
Og enn eitt atriði, það er svaka gaman að komast að hlutum um sjálfa sig. Mér finnst þægilegt að hlutirnir gangi rólega fyrir sig, slowly but surely, heldur en allt er alltaf á fleygiferð. Þannig sé ég lífið mitt núna, rólega að ferðast í átt að takmarkinu, og líkar það mjög vel. Gefur manni líka ágætlega góða blekkingu um að maður hafi algjöra stjórn á öllu.
Eigið góðar stundir. Hlutirnir koma, þó svo þeir komu ekki í gær. Munið það og góða nótt!
~Polly
Pirruð
Ég er pirruð á fólki sem heldur að vegna þess að það er í ákveðinni stöðu þá eigi það rétt á öllum heiminum. Ég er pirruð á því að því fólki er alveg sama um aðra sem fá þriðjung af því sem þau fá og vilja bara meira meira. Ég er pirruð á fólki sem heldur að það sé betra en ég af því bara og fólki sem þarf að gera lítið úr öðrum til að láta sér líða betur og heldur að það komi betur út hjá öðrum. Í samfélagi óþokka þá dýrkum við þá sem fara verst með fólk en erum svo hissa á að ekki fleiri séu eins og þessi eina sanna góða manneskja sem við hittum kannski einu sinni á ævinni.
Ég er þreytt á því að lána hluti og fólk lánar það áfram án þess að biðja mig um leyfi. Ég er þreytt á því að fólk skili ekki hlutunum og ég þurfi alltaf að keyra út um allt til að sækja eigur mínar. Ég er þreytt á að fólk fái lánað eitthvað hjá mér, gleymi hvaðan það fékk það og eigni sér hlutinn. Ég vil fá hluti sem ég lána til baka, ég vil að fólk að minnsta kosti sýni mér að það veit að það er með eitthvað í láni hjá mér og sýna að þau ætli að skila honum.
Ég vil að fólk standi við það sem það lofar. Ég vil að fólk fái ágætlega jafna meðferð og standi nokkurn veginn á sama grundvelli þegar kemur að tækifærum. Já, nokkurn veginn því að sá sem hefur lagt harðar að sér eða sýnir að hann er tilbúinn til að leggja hart að sér fái tækifæri til þess frekar en manneskja sem stendur og gerir ekkert og fær allt upp í hendurnar á sér ‘af því bara’.
Ég þoli ekki að lesa texta hjá fólki sem kann ekki að skrifa. Á íslensku eða ensku, skiptir engu máli. Ég skil eina og eina stafsetningavillu og málfræðivillur, já. En ef ég get ekki lesið heila setningu villulausa þá fer ég eitthvað annað. Það heitir Word og því fylgir stafsetningaleiðréttingarforrit. Svo er til Púkinn... það er til leið til að hætta þesu. Við vitum öll um hvað ég er að tala. úje, ég skomm fór þaddna með henni og við djööömuuðum feiiiidast skomm. o so km hann skomm og við bra þúst og svo omg lov jú bojj!!
Vinsamlegast leggið leið ykkar út á götu og bíðið eftir að rúta klessi á ykkur. Takk.
Það er ýmislegt sem liggur þungt á mér þessa dagana, og ef til vill hlutir sem eiga ekki að skipta miklu máli. En það er ekki þar með sagt að þessar tilfinningar séu óæðri öðrum eða rangar. Fólk á ekki að byrgja allt inni, það er einfaldlega ekki hollt. Ef ykkur líður illa, komið því frá ykkur einhvern veginn (helst eins ofbeldislaust og hægt er). Ef ykkur líður svo vel að þið gætuð tekist á loft og byrjað að syngja, verið ófeimin við að sýna það! Engar tilfinningar eiga meira rétt á sér en aðrar og engar tilfinningar eru ‘verri’ en aðrar. Þetta er allt hluti af rússíbananum sem kallast líf og við eigum að þekkja okkur og okkar tilfinningar nógu vel til að kunna að bregðast við öllu sem kemur fyrir.
Núna stend ég frammi fyrir því að fara í tvær veislur í kvöld, ætlaði að vera svaka fín og búin að velja fötin. En núna þarf ég að fara og velja eitthvað annað því fólk hefur ekki skilað þeim eða kannski ætlar ekki að skila þeim? Hvað veit ég? Ég legg til að fólk fari að skrifa niður allt sem það lánar og hvenær fólk ætlar að skila því. Svo bara hringir maður og segir að tími sé kominn til að skila hlutunum og ef ekkert gerist þá er bara ekki hægt að lána í einhvern tíma aftur. Því miður. Og já, ég er með poka af dóti sem fólk skilur eftir heima hjá mér eða lánar mér. Um leið og ég er búin með það þá set ég það í poka (nema það séu föt þá þvæ ég þau fyrst) og svo er allt klárt til að fara aftur heim. Þess vegna fer það svo illa í mig þegar fólk gleymir að ég hafi lánað eitthvað og eignar sér það. Hefur komið oftar en einu sinni fyrir mig svo ég á rétt á því að kvarta!
Ég var búin að skrifa aðra færslu sem, ótrúlegt en satt, kom ekki inn á blog.central, en mér finnst þessi betri. Og þar sem það kjaftæði virkar ekki þá set ég þetta hér inn
~Polly
Er það ég eða...
veit að nú er ég algjörlega búin að jinxa þessu en þegar ég hef komið hérna inná hafa prýðispiltar verið til sýnis í litla kassanum....
Fjölmiðlar, hópavinna og sjónvarpstæki
Núna í vikunni mun ég halda fyrirlestur ásamt 4 öðrum um eignarhald á fjölmiðlum. Eins og ég hef mikinn áhuga á þessu efni játa ég fúslega að ég hef litla þekkingu um þetta málefni. Með því að fara og hlusta á fólkið sem er með mér í hóp tel ég mig hafa lært þó nokkuð og með því að blaðra vitleysu út úr mér þá hafa þau leiðrétt eða náð að standa fyrir máli sínu það vel að ýmsir hlutir hafa verið útskýrðir sem ég vissi ekki einu sinni að væru til. Málið er nefnilega ekki eins einfalt og það virðist í fyrstu, þetta snýst ekki bara um karla sem vilja láta skrifa vel um sig og illa um óvininn, heldur alla sem koma batteríinu við. Nauðsynlegt er að grafa dýpra en bara í fjölmiðlaumfjöllunina, en hún getur oft verið villandi og beint okkur niður allt aðra braut en málefnið leiðir.
Fólkið í hópnum mínum er ekkert annað en snillingar. Hvert á sinn hátt, auðvitað. Þau eru öll eldri en ég, 2-3 árum amk, og hafa verið yndisleg við mig. Það vottar ekki fyrir neinu sem heitir fyrirlitning og mér hefur ekkert fundist verið talað niður til mín vegna þess hversu ‘lítil’ eða gömul ég er (as in: jájá þú ert bara 20 og veist ekkert…). Þetta er ótrúlega sjaldgæft þegar maður hugsar út í það og ef eitthvað þá virði ég þau enn meira fyrir þetta. Klassafólk sem er ekkert að gera hlutina erfiðari en þeir þurfa að vera og ekkert of óþægilegt að mæta og spjalla við þau. Mæli með því að vera skellt í hópavinnu með fólki sem maður þekkir ekkert á fyrstu önninni því þetta er fljótleg leið til að kynnast fólki.
Ég held barasta að þetta eigi eftir að ganga ágætlega hjá okkur.
Þá er ég nokkurn veginn búin að tala um fyrstu tvö atriðin í titlinum og þá er bara að snúa sér að hinu þriðja: sjónvarpstæki.
Þegar ég var, hvað…13 eða 14 held ég, þá fengum við Guðjón sitthvort sjónvarpið í jólagjöf frá ömmu, afa, mömmu og pabba. Þetta var lítið og sætt sjónvarp sem virkar mjög vel enn í dag. Síðan þá hefur fjölskyldan skipt tvisvar um sjónvarp svo ég muni til og var nýjasta skiptingin nú í kvöld. Ég kom heim um átta leytið eftir heilan dag á Þjóðarbókhlöðunni og sé galopna hurð og velti því fyrir mér hvað sé í gangi. Svo labba ég inn og sé pabba með fjarstýringu og góða, stóra sjónvarpið okkar á borðinu fyrir framan hann…sumsé ekki á sínum stað. Á hvíta rúlludæminu sem sjónvarp fjölskyldunnar hefur búið frá því áður en ég fæddist situr nú eitt stærsta dót sem ég hef nokkurn tíman séð. 50 tommu skjár, hvorki meira né minna! Ég segi það satt ég gæti komist fyrir í fullri stærð þarna…svona næstum. Svo var einhver stöð fundin og fídusar prófaðir fram og aftur og ég sat þarna, líðandi eins og ég væri að horfa í gegnum risa-stækkunargler. Já, þegar enski boltinn verður á skjánum þarf fólk að passa sig að boltinn komi ekki bara út úr sjónvarpinu og beint í hausinn á þeim. Við gætum alveg eins setið við línuna og horft á leikinn. Jeminn eini!
En þá er eitt mál eftir: hvað á að gera við ‘gamla’ sjónvarpið? Eldra gamla sjónvarpið situr uppi á lofti hjá pabba, Guðjón er fluttur að heiman og Bragi er svo til nýbúinn að fá sjónvarp sem er ágætlega stórt. Þá er auðvitað bara eitt að gera: Pollý fær það inn til sín!! Já, ég hefði lítið á móti því að fá þetta ‘gamla’ geggjaða sjónvarp inn til mín, en þá kemur skipulagsvesen inn í og það verður bara á ‘hold’ þar til ég hef góðan stað til að geyma blessaðan kassann. Herbergið er undergoing svakalegar breytingar og við mamma búnar að fara í IKEA og tékka á hinu og þessu sem herbergið þarfnast. Hugsið ykkur, ég er búin að búa hérna í 11 ár og enn er herbergið ekki komið í endanlegt/ágætlega gott horf.
En já, við sjáum til hvað kemur fyrir sjónvarpið…kannski við komum því bara fyrir inni í herberginu hans Guðjóns sem er orðið nokkurn veginn afþreyingarmiðstöð fyrir mig, hér er borðtölva, netið, Nintendo64 með uppáhalds leiknum mínum, 2 sjónvörp og DVD spilarinn hans Braga… og geggjaðir hátalarar ![]()
Þar til síðar, endilega kommentið og látið mig vita hverjir eru að lesa þetta…
~Polly
enska, því þetta er á myspacinu mínu ;)
hey my horny lil devils. excuse me for being cranky but i hope i have the right to complain, just because of my PMS, if nothing else. actually i don't have pms for the next 3 weeks, but i aint waiting for that. so here goes.
Here's one thing i just can't understand, no matter how sober or drunk i am. If we r the partyzone of earth according to our king-of-the-world ads, then why the (excuze my dutch) FUCK are the *icy men so closed up in their shells about being nice to girls in order to get to know them better? maybe in some cases the shells are closets and cupboards, and for those sweeties I'm not going to include them in my complaints.
2 weeks ago i went downtown to have fun. I'm single since June and twenty since august (not that it has stopped me until now;)) so you can see i was in the need of good fun.
Me and my birds (a 19 yo model and 19 yo hottie) went to a club, saw my ex and walked out. i'm not gonna talk too much about him. then we went to another club, and saw him again. this time he left. we were dancing and i dont know who the hell turned on that 30+year old magnet, but it sure was doing it's thing that night.
First of all, there was this 30 yo icy guy who was trying to pull me into his arms to do a lil dancing. I said no a couple of times, and after the 10th time he only came if I was looking to his direction.
we went down the stairs, and there was a spanish guy trying to get anything that was blond to drink water with him. At least he was smooth and nice. i said no because he did poo where he was eating.
then we sat down. it was crowded and 2 icers came and sat down. they ruined their explicit smultz of sitting down by saying they 'couldn't find any other place to sit down'. no comment. then they just sat and got older while not talking to us, and not buying us drinks (which i would never expect of icers). I know you have read 'How to get a girl from a date to bed' on the internet a thousand times, but hell the meaning of 'letting the girl do all the talking' does not mean you should JUST sit and be pretty. so my friend drank their beer when they looked away, and 90% of the talking was them saying 'drink! drink! drink!'. i am sure they went home alone, or with a pair of tanks.
Next, there were 2 other icers that sat down. they were looking all horny and stuff and ofcource nothing is more nice than being looked at as the starter on the menu which you eat and return the day after. it was about 3 o'clock so bakkus had already made my talking soft as a baby's ass for the right ppl. my hands were dirty of alcohol, ashes from the candle we killed with our fingers and a lubricant my friend had gotten with a pair of condoms at school. mmmm yummo. The guy sitting across the table took my hand and LICKED IT! my god. when he started putting it in his mouth i took it away. cmon even i know that you should kiss a girl's hand, not stick it in your mouth.
the other one was trying to get me to sit beside him. He didn't ask me, he told me to. when i said no, he removed the things which were on the chair, and told me again. after the 3rd time he took my cocktail and put it where chair was at. Ofcource that's like teasing a rabbit with a carrot, so I sat there. My friend saved me by helping me look as gay as possible. we flirted a little and gave mommiekisses to each other. the guy looked as if we had farted in a bag and put it over his head. so he took the hold of my other friend. Our friend, the bartender (btw happy birthday!!! ) saved us from them.
now. let's get to the foreign guys. I and my friend went to the bar to get a pair of Cosmos. when i looked around my other friend had gotten 3 new acquaintances from NY. they were about 30 yo judging by the look and profession. a CIO, a vet and a guy who was just looking fabulous in a 'I heart NY' T. They smoothened us up, and even too much (by inviting us to dinner later). but they were bloody nice to us for a change. I still haven't drawn his picture like i promised, but no worries, it's on it's way.
Last night we went down town again and this time we were at a more of a dancing kinda place. before we got in there were a bunch of icer guys who made their way in front of us in the line. cmon guys that's not nice. you're wearing pants and jackets, and we're in high heels, short skirts and tops. and it is iceland. we decided to block them out for the rest of the night. then we were sitting in the sofa with our beers and having a good time. then an icer bends over and asked if we were taken. we said 'what' cuz we didn't understand him. then he went away. then there were guys looking and even pointing. but did nothing. so we called our jamaikan friend Chris. he came and on our way to get him at the entrance an icer grabs my arm softly and asks if he could have my number. i was in a hurry and drunk so i said maybe later. for fuck sake i was stupid to let that one go. a smooth icer! but i don't like people that only like other ppl because of their looks....but then hell you've got to get to know ppl somehow.
we got chris inside the club and went dancing. my friends tell me i'm white trash dancer, so that's the description you'll get. so we were there, me and the 2 girls from last time, and Chris. then all of a sudden the icers came to dance with us. ofcource we ignored them. and then they were smiling at chris like 'how does he do that?' well for fucks sake if you don't know by reading this blog, you'll never know because i sure as hell aint gonna peel the banana and feed it to your stomach. when we got chris home a couple of icers walked by and muttered something about girls just being into that kind of stuff so we could hear. i think they were talking about foreigners. cmon if i'm supposed to cook, clean and bring up kids around the house, you can at least buy me dinner.
*icer / icy man: icelandic guy
Ég fann enga addressu nema hjá mattel foundation...svo ég sendi þetta þangað
hello, please take a minute to read the whole letter.
But the dolls surely must have an effect. Barbie girls become alive when you're playing with them. In the attachment you'll find a picture of 4 girls. The first one is a cartoon barbie located at barbie.com. the second one is Mattel's top model barbie doll. the third and fourth one are pictures of Ana Carolina Reston. She died last year of anorexia. I'd like to point out that Barbie is thinner than this 21 year old anorexic model was.
thank you for your time,
Silja
-----------
Hugga þú ert æði :D

