Innskráningar kubbur

Piltur dagsins

Fjölmiðlar, hópavinna og sjónvarpstæki

08. október 2007 klukkan 23:01


Núna í vikunni mun ég halda fyrirlestur ásamt 4 öðrum um eignarhald á fjölmiðlum. Eins og ég hef mikinn áhuga á þessu efni játa ég fúslega að ég hef litla þekkingu um þetta málefni. Með því að fara og hlusta á fólkið sem er með mér í hóp tel ég mig hafa lært þó nokkuð og með því að blaðra vitleysu út úr mér þá hafa þau leiðrétt eða náð að standa fyrir máli sínu það vel að ýmsir hlutir hafa verið útskýrðir sem ég vissi ekki einu sinni að væru til. Málið er nefnilega ekki eins einfalt og það virðist í fyrstu, þetta snýst ekki bara um karla sem vilja láta skrifa vel um sig og illa um óvininn, heldur alla sem koma batteríinu við. Nauðsynlegt er að grafa dýpra en bara í fjölmiðlaumfjöllunina, en hún getur oft verið villandi og beint okkur niður allt aðra braut en málefnið leiðir.

Fólkið í hópnum mínum er ekkert annað en snillingar. Hvert á sinn hátt, auðvitað. Þau eru öll eldri en ég, 2-3 árum amk, og hafa verið yndisleg við mig. Það vottar ekki fyrir neinu sem heitir fyrirlitning og mér hefur ekkert fundist verið talað niður til mín vegna þess hversu ‘lítil’ eða gömul ég er (as in: jájá þú ert bara 20 og veist ekkert…). Þetta er ótrúlega sjaldgæft þegar maður hugsar út í það og ef eitthvað þá virði ég þau enn meira fyrir þetta. Klassafólk sem er ekkert að gera hlutina erfiðari en þeir þurfa að vera og ekkert of óþægilegt að mæta og spjalla við þau. Mæli með því að vera skellt í hópavinnu með fólki sem maður þekkir ekkert á fyrstu önninni því þetta er fljótleg leið til að kynnast fólki.

Ég held barasta að þetta eigi eftir að ganga ágætlega hjá okkur.

Þá er ég nokkurn veginn búin að tala um fyrstu tvö atriðin í titlinum og þá er bara að snúa sér að hinu þriðja: sjónvarpstæki.

Þegar ég var, hvað…13 eða 14 held ég, þá fengum við Guðjón sitthvort sjónvarpið í jólagjöf frá ömmu, afa, mömmu og pabba. Þetta var lítið og sætt sjónvarp sem virkar mjög vel enn í dag. Síðan þá hefur fjölskyldan skipt tvisvar um sjónvarp svo ég muni til og var nýjasta skiptingin nú í kvöld. Ég kom heim um átta leytið eftir heilan dag á Þjóðarbókhlöðunni og sé galopna hurð og velti því fyrir mér hvað sé í gangi. Svo labba ég inn og sé pabba með fjarstýringu og góða, stóra sjónvarpið okkar á borðinu fyrir framan hann…sumsé ekki á sínum stað. Á hvíta rúlludæminu sem sjónvarp fjölskyldunnar hefur búið frá því áður en ég fæddist situr nú eitt stærsta dót sem ég hef nokkurn tíman séð. 50 tommu skjár, hvorki meira né minna! Ég segi það satt ég gæti komist fyrir í fullri stærð þarna…svona næstum. Svo var einhver stöð fundin og fídusar prófaðir fram og aftur og ég sat þarna, líðandi eins og ég væri að horfa í gegnum risa-stækkunargler. Já, þegar enski boltinn verður á skjánum þarf fólk að passa sig að boltinn komi ekki bara út úr sjónvarpinu og beint í hausinn á þeim. Við gætum alveg eins setið við línuna og horft á leikinn. Jeminn eini!

En þá er eitt mál eftir: hvað á að gera við ‘gamla’ sjónvarpið? Eldra gamla sjónvarpið situr uppi á lofti hjá pabba, Guðjón er fluttur að heiman og Bragi er svo til nýbúinn að fá sjónvarp sem er ágætlega stórt. Þá er auðvitað bara eitt að gera: Pollý fær það inn til sín!! Já, ég hefði lítið á móti því að fá þetta ‘gamla’ geggjaða sjónvarp inn til mín, en þá kemur skipulagsvesen inn í og það verður bara á ‘hold’ þar til ég hef góðan stað til að geyma blessaðan kassann. Herbergið er undergoing svakalegar breytingar og við mamma búnar að fara í IKEA og tékka á hinu og þessu sem herbergið þarfnast. Hugsið ykkur, ég er búin að búa hérna í 11 ár og enn er herbergið ekki komið í endanlegt/ágætlega gott horf.

En já, við sjáum til hvað kemur fyrir sjónvarpið…kannski við komum því bara fyrir inni í herberginu hans Guðjóns sem er orðið nokkurn veginn afþreyingarmiðstöð fyrir mig, hér er borðtölva, netið, Nintendo64 með uppáhalds leiknum mínum, 2 sjónvörp og DVD spilarinn hans Braga… og geggjaðir hátalarar :>>

Þar til síðar, endilega kommentið og látið mig vita hverjir eru að lesa þetta…
~Polly

 
Hugrún
va.....ég fékk ekki einu sinni Game Boy! fannst risa að fá videotæki í fermingargjöf og ég á ekki hjóðspilunargræjur! Mitt herbergi er líka "að koma" ;O)
#1
09. október 2007 klukkan 18:36

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Páskafríið fer í