Rabmle og vitleysa
14. maí 2008 klukkan 00:07
Það er alveg ótrúlegt hvað það er langt á milli færsla hérna, en það kemur alltaf reglulega tími þar sem ég hata virkilega blogcentral kerfið og fer og reyni að leita að lykilorðinu mínu sem ég gleymi alltaf en oftast tekst að finna það aftur. En já, ég hafði einhverja löngun til að rita nokkur orð.
Fyrst væri kannski best að segja hæ! langt síðan ég hef séð ykkur og heyrt í ykkur. FaceBook hefur tekið við sem aðal samskipta straumur okkar.
Ég hef bara ekki hugmynd um hvað ég á að blaðra um hérna núna. Á ég að tjá mig um Harry Potter Trivia dæmið sem ég hef algjörlega fallið fyrir og eyði meiri tíma í en ég ætti? Á ég að tjá mig um skólann? Hvernig væri bara að segja að ég er sjúklega fegin að vera búin og vera í fríi. Þó svo ég hafi bara ekki rassgat að gera er það samt skemmtilegra en dröslast með bækur og láta sér leiðast í snjó og vindi og vera stöðugt veik og þreytt.
Dansinn er að verða búinn, sem er ömurlegt. Það er búið að vera ótrúlega gaman og ég er búin að læra fullt af geggjað skemmtilegum æfingum sem gefa manni góðar harðsperrur (eða hassberrur?). En ég verð bara að vera dugleg að æfa mig þar til í haust.
Sumarið er hér, eða öllu heldur, græna grasið og grænu laufin eru komin.
Langt síðan ég hef séð garðinn heima hjá mér svona grænan og verið hér til að njóta þess í lengur en hálfan dag. Pabbi sló grasið í dag og ég get svo svarið það, ég fann lyktina af því inn í alveg lokað herbergi. Æði!!!
En áður en ég hætti þessari vitleysu þá verð ég að segja að myndin sem er á Stöð2Bíó (Invinsible) er svaka mikið bull, en ofsalega skemmtileg. Mæli með þessu fyrir fólk sem er að drekka eða bara í leit að einhverju bulli.
~Pollý
Fyrst væri kannski best að segja hæ! langt síðan ég hef séð ykkur og heyrt í ykkur. FaceBook hefur tekið við sem aðal samskipta straumur okkar.
Ég hef bara ekki hugmynd um hvað ég á að blaðra um hérna núna. Á ég að tjá mig um Harry Potter Trivia dæmið sem ég hef algjörlega fallið fyrir og eyði meiri tíma í en ég ætti? Á ég að tjá mig um skólann? Hvernig væri bara að segja að ég er sjúklega fegin að vera búin og vera í fríi. Þó svo ég hafi bara ekki rassgat að gera er það samt skemmtilegra en dröslast með bækur og láta sér leiðast í snjó og vindi og vera stöðugt veik og þreytt.
Dansinn er að verða búinn, sem er ömurlegt. Það er búið að vera ótrúlega gaman og ég er búin að læra fullt af geggjað skemmtilegum æfingum sem gefa manni góðar harðsperrur (eða hassberrur?). En ég verð bara að vera dugleg að æfa mig þar til í haust.
Sumarið er hér, eða öllu heldur, græna grasið og grænu laufin eru komin.
Langt síðan ég hef séð garðinn heima hjá mér svona grænan og verið hér til að njóta þess í lengur en hálfan dag. Pabbi sló grasið í dag og ég get svo svarið það, ég fann lyktina af því inn í alveg lokað herbergi. Æði!!!En áður en ég hætti þessari vitleysu þá verð ég að segja að myndin sem er á Stöð2Bíó (Invinsible) er svaka mikið bull, en ofsalega skemmtileg. Mæli með þessu fyrir fólk sem er að drekka eða bara í leit að einhverju bulli.
~Pollý
Hugrún
FACEBOOK ER ROSALEGT!
#1
26. maí 2008 klukkan 20:22
