Innskráningar kubbur

Piltur dagsins

bzzt

30. apríl 2007 klukkan 12:55
Ég sá geitung í dag. Ég er ekki að ljúga, ég sá hann bara gangandi á götunni í mót mér er ég steig út úr bílnum núna áðan. bzzt. 

..,-ţetta er hann óli prik

30. apríl 2007 klukkan 12:26

Hafiði einhvern tíman hugsað útí það hvað siðferðisvitund fólks er auðveldlega brengluð?

Smá umræða var í óvissuferðinni með vinnuliðinu í gær sem hófst með tali um sjónvarpsþáttinn Dexter. Síðan þá hef ég mikið pælt í þessu og hugsið ykkur hvað það er í raun og veru auðvelt að heilaþvo fólk?

 

En jæja, maður á víst frekar að hugsa um prófin núna….. annars er bara að bíða eftir að stelpan sem er í einu MAC-a tölvunni á svæðinu og er ekki að gera neitt (leikjanet.is) skundi sér í burtu svo ég geti fengið tölvuna og gert mitt mjög svo mikilvæga SJL verkefni.

 

Ég er komin með vinnu J vinnu sem ég sótti ekki einusinni um en hey,,,, verð í eldhúsinu í OR, hljómar sveitt, en ég er ekki frá því að vera svolítið spennt fyrir þessu er komin með ógeð á slætti og áburðardreifingu.

 

Æj hef ekkert skemmtilegt að segja, ætla að reyna að fæla stelpuna í burtu…..

íslenskan er yndisleg ég segi ţađ sem ég vil...

28. apríl 2007 klukkan 18:02

við sátum í makindum okkar, ég og 2 aðrir íslenskuspekingar (for the weekend at least) á Maður lifandi yfir forláta kjúklingavefjum, gamaldags lakkrís og Engiferöli. Búnar með efnafræði- og söguprófin um morguninn. Hvað var í boði? fara á bókasafnið og læra, fara í stofu að læra, fara heim að læra....gott og vel. við ákváðum að hittast í bíó um kvöldið. Fara á Blades of glory. Ég mætti þarna klukkan 5 í tíu og sá þá að hálf þjóðin var bara mætt í kvikmyndahúsið í Mjóddinni. ég ákvað því að vera góðastelpan og beið í röð og keypti 6 miða. Fattaði svo að þeir áttu að vera 7. whoops a daisies. Svo var mér sagt að þetta væri frumsýning. geggjað. svo rukum við inn á eftir þjóðinni og settumst. 15 ára frænka mín sat við hliðina á mér og blessunin benti mér í hléinu á hvað ég hló hátt. :) Ég hló eins og Vitleysingur...og skríkti frekar hátt á eftir einu tilteknu atriði. mæli eindregið með þessari mynd.
Síðast þegar ég fór í bíó fór ég á Bean myndina...nennti ekki að læra meiri ensku og dreif foreldrana með mér á sex-sýningu :) Ég hló út hálfa myndina. Sá sem toppaði mig í hlátri var samt forláta Gothari sem sat fyrir aftan mig :) Hann lá í kasti.
Nú fer að koma að íslenskuprófi á mánudaginn og það verður geðveikt að vera búin með það :)

Hlaut ađ koma ađ ţví!

24. apríl 2007 klukkan 19:55
Hæ dúllurna mínar, Its been a while...

Vil byrja á því að hrósa Silju fyrir AWESOME bannera. Jáh greinilegt að hæfileikarnir liggja víða!
en jæja smá um MIGMIGMIG!! Hlæjandi
ýmislegt hefur á daga mina drifið síðan ég bloggaði seinast (guð veit hvenær það var :S ) fyrst má nefna, hætti í Versló og fór í Borgo sem er alveg æði!!! Sérstaklega tilraunamyndlistin sem hefur bjargað mér frá því að fá ógeð á bóknáminu.
Anyhoo, svo nýlega urðu breytingar á fjölskylulífinu og ég flutti með momsy og systrum mínum í Grafarvoginn, sem þýðir að Diljá er loksins komin í Reykjavíkina! :D (112 Reykjavík) Það er alveg yndislegt hvað það er stutt í allt núna, allt sem að ég þarf er innan 5 mín radíusar Brosandi

 

En samt svo merkilegt hvað lítið getur gerst á svona miklum tíma.

Ég, Hugsy og Dísa erum að fara á Klink ball á morgun á Broadway með Palla Óskari að DJast- klárlega ódýrasta ball sem ég mun fara á, 300 kjeeeell, Versló toppar þetta ekki ha?! Glottandi


Annars er gaman að segja frá því að litlastórasys fer bráðlega að koma heim, en leiðinlegra að segja frá því að við munum deila hjónaherbergi - I know..

Megiði eiga gleðilegan 24.apríl já og jafnvel 25. líka..ef þið eruð stillt .:)

letibykkja :)

22. apríl 2007 klukkan 17:29

ef einhver ykkar hefur nákvæmlega ekkert að gera eða er að taka sér "pásu! :) þá getiði endilega sett inn síðu um ykkur til hliðar með spurningunum sem þið getið kóperað úr "Booty" síðunni ;) bara smá hugmynd ;)
er annars að vona að ég komist ágætlega í gegn um stúdentinn...svo er það bara massa brill í útskriftaferðinni :) ég lofaði víst einhverjum á galakvöldinu að ég færi með þeim á gaybar á fuerte...við sjáum bara til með það.
pís át og go joplin :)
booty

...Gleđjist gumar, gaman er í dag...

19. apríl 2007 klukkan 21:31

Alveg skelfilegt. Ég fór í gær um fjögur og sótti Betu systur mína á Olís klukkan fjögur. Þar sá ég í sjónvarpinu  beina útsendingu um brunann  í miðbænum. Alveg skelfilegt, í fyrstu hélt ég að þetta væri bara Pravda sem hefði brunnið, en þetta er ekkert smá! 

 

 Það sem sló hins vegar enn meira myrkri á málið og umfjöllun þess var -að mínu mati- þegar ég horfði á fréttirnar og sá Vilhjálm borgarstjóra allt í einu mættan í slökkviliðsbúning og svaka múnderingu, svona eins og hann hefði verið að gera eitthvað til að hjálpa við slökkvistarfið! Jidúddamía! en heppilegt að svona bruni skuli koma rétt fyrir kosningar svo að okkar elsku litli borgarstjóri geti þóst vera gríðarleg hetja. 

 

 Hvað er að?  Að misnota tækifærið svona illilega...oj!

   Síðan í dag sá ég í dagblöðunum mynd af honum í þröngum, hvítum stuttermabol í tilefni Alþjóðaleika ungmenna eða álíka. 

 

 Sko, elskan: Ef þú ætlar að leika hugrakka slökkviliðsmanninn og vera að spranga um í þröngum stuttermabol, þá máttu allavega nota smá af skrifstofuflakkinu í stigann í stað lyftunnar, vatn í stað heits súkkulaðis, kviðæfingar í stað þess að stanga úr tönnunum o.s.frv. 

  Margt smátt gerir eitt stórt. 

 

 Annars hef ég ekki neitt á móti Vilhjálmi, þekki ekkert til verka hans, né hann sjálfan.

 

 Hvað um það. Ég elska sumardaginn fyrsta. Sumardagurinn fyrsti, 17.júní og Menningarnótt eru tilefni þar sem ég fer nærri alltaf niður í bæ. En ekki núna. Nei, bærinn er svo  sorglegur. Vill einhver vera með mér í mínútuþögn eftir hálftíma? Æ...

 

 Skrapp í reiðtúr með Ásgeir í dag hjá Íshestum. Fengum leiðbeiningar hjá Perlu minni um gatnakerfi Hafnarfjarðar takk kærlega, og ég fékk þennan fína hest Víking! 

 

 Veðrir alveg dásamlegt, lífið er dásamlegt, sumarið mun eflaust trompa öll hin fyrri og ég hlakka gífurlega til! 

 

 Til hamingju með sumarið, dömur mínar og herrar!

 

Kveðja 

Hugrún litla

And so it all began...

17. apríl 2007 klukkan 17:42
Jæja ok. Ég bara hitti ekki á neinn á netinu svo ég ætla að taka mér það leyfi að bæta bloggi, myndum og alls kyns vitleysu (en samt ekki einhverri steypu) inn á þetta. If you don't like it... well... I don't know... go and create a myspace page or something.

Hlæjandi Allavega,
*lubbles you all*
~Polly

úllalla!

16. apríl 2007 klukkan 21:41
Já, er þetta rétt eða er ég að klikka?!

THE FOXY CLUB ER RISINN Á NÝ, risinn úr öskustónni. 


 Til hamingju, Silja, Pollý, Diljá, Sonja og Hugrún!

 Ekkert er ómögulegt!

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Páskafríiđ fer í